Það má leggja bílunum hvar sem er í lögleg stæði innan þjónustusvæðisins, það á einnig við um gjaldskyld bílastæðasvæði eins og P1 - P4.
Athugið að óheimilt er að leggja í stæði sem eru ætluð hreyfihömluðum eða svæði sem eru sérstaklega frátekin fyrir ákveðin fyrirtæki.
"No park zone" - eru svæði sem óheimilt er að leggja á. Þau eru merkt sem hvít svæði í appinu. Á þeim svæðum er ekki hægt að enda ferð.
Sem dæmi má nefna að óheimilt er að leggja við Landspítalann.

