Taka frá bíl
Til að taka frá Deilibíl þá þarf að opna Hopp appið og finna deilibíl á kortinu og ýta þar á blá takkann sem segir Taka frá.
Það er hægt að taka frá deilibíl í allt að 30 mínútur í senn og það kostar 30 kr á mínútuna.
Það kostar það sama fyrir allar gerðir: Teslur, Sendiferðabíla eða venjulega.
Aflæsa bíl sem var tekinn frá
Til að aflæsa fráteknum bíl þarf að standa við hliðina á bílnum. Þú opnar appið og ýtir á Skanna til að aflæsa. Síðan notar þú appið til að skanna QR kóðann sem er á vinstri hlið bílsins.
Þetta aflæsir bílnum og byrjar ferðina.
Hætta við frátekt
Til að hætta við frátekt þá ýtir þú á rauða takkann í appinu.