Skip to main content

Hvernig staðfesti ég rafrænt ökuskírteini í Hopp appinu?

Við tökum nú við rafrænum ökuskírteinum. Fylgdu skrefunum hér að neðan til að staðfesta ökuskírteinið þitt og byrja að leigja Deilibíla frá Hopp.

Svona staðfestir þú rafræna ökuskírteinið þitt, skref fyrir skref:

1. Opnaðu Stillingar

Í Hopp appinu ýtir þú á prófílmyndina efst í hægra horninu og velur Stillingar.
​

2. Bættu við ökuskírteini

Ýttu á Breyta (edit) og veldu svo Bæta við ökuskírteini (add)
​


3. Veldu rafrænt ökuskírteini

Þú sérð tvo möguleika:

  • Rafrænt ökuskírteini

  • Ökuskírteini (plastkort)

Veldu Rafrænt ökuskírteini og ýttu á Áfram.
​

4. Staðfestu hver þú ert

Þér verður vísað á Kenni til að staðfesta auðkenni þitt. Þú getur skráð þig inn með:

  • Rafrænum skilríkjum

  • Auðkennisappinu

  • Kenni aðgangslykli


5. Taktu sjálfu

Eftir innskráningu opnast fram-myndavélin á símanum sjálfkrafa. Taktu sjálfu þegar beðið er um það. Hún er notuð til að staðfesta að ökuskírteinið tilheyri þér.
​

6. Hladdu upp strikamerki ökuskírteinisins

Næst þarftu að hlaða upp strikamerkinu úr rafræna ökuskírteininu þínu.

  1. Opnaðu Ísland.is og farðu í rafræna ökuskírteinið þitt.

  2. Taktu skjáskot af strikamerkinu.

  3. Vistaðu skjáskotið í símanum eða afritaðu það.

  4. Farðu aftur í Hopp appið.

  5. Hladdu upp skjáskotinu eða límdu það inn.

Mikilvægt: Strikamerkið á Ísland.is gildir aðeins í um það bil eina mínútu, svo þú þarft að klára þetta skref fljótt.

7. Staðfestingu lokið

Ef allt gekk vel verður ökuskírteinið þitt samþykkt sjálfkrafa í Hopp appinu. Nú getur þú leigt Deilibíl frá Hopp.

Þarftu aðstoð?

Ef þú lendir í vandræðum í staðfestingarferlinu skaltu hafa samband við þjónustuverið í gegnum spjallið í Hopp appinu. Við aðstoðum þig með glöðu geði.

Did this answer your question?