Hvernig kaupi ég Hopp passa?
Opnaðu Hopp appið og ýttu á hringinn í neðra vinstra horni.
Veldu "% Hopp passar"
Veldu þann passa sem hentar þér. Vinsamlegast athugaðu, það fer eftir staðsetningu þinni hvaða gerðir af pössum eru í boði.
Lestu skilmála passans og ýttu svo á kaupa.
Ljúktu við greiðsluferlið með því að velja Kaupa núna
Mundu að velja Hopp Passann þinn sem greiðslumáta áður en þú byrjar ferðina.
Hopp Passinn verður sjálfkrafa stilltur sem greiðslumáti eftir kaup. Hins vegar, ef þú velur annan greiðslumáta í millitíðinni, þarftu að velja Hopp Passann aftur handvirkt næst þegar þú hoppar.
Hvar gilda Hopp passarnir?
Passarnir gilda eingöngu á því svæði þar sem þeir eru keyptir.
Hvernig nota ég Hopp passa?
Eftir að Hopp passi er keyptur verður hann sjálfkrafa að greiðslumáta.
Er tekið gjald fyrir aflæsingu þegar maður notar Hopp passa?
Nei, það er ekkert unlock fee þegar maður notar Hopp passa
Get ég fengið Hopp passa endurgreiddan?
Nei, það er ekki hægt að endurgreiða passa.
Þarf ég að bæta við kreditkorti til að nota Hopp Passa?
Já, þú þarft að hafa kreditkort skráð á notanda-aðgangnum þínum áður en þú getur notað Hopp Passann.
Get ég nýtt Hopp passa í Hópferð?
Passinn verður nýttur fyrir fyrstu skútuna sem leigð er, allar aukaferðir í hópferð verður rukkuð á kortið þitt.
Hvar get ég fundið skilmála fyrir passana?
Allar upplýsingar um verð og skilmála Hopp passa er hægt að finna í kaupferlinu.





