Finna sendibíl í appinu
Til að finna sendibíl, byrjaðu á að opna Hopp appið, velja bíla með takkanum uppi í hægra horninu og zoom-a síðan út.
Sendibílarnir eru með hvítt tákn á kortinu.
Ef þú finnur ekki bíl á kortinu þá gæti það þýtt að allir bílarnir eru uppteknir. Endilega athugaðu aftur eftir nokkrar mínútur.
Stærð sendibíla hentar í ýmsa smærri flutninga. Lestu meira um stærð sendibílanna hérna
Taka bíl frá
Eftir að þú finnur bílinn á kortinu þá er hægt að taka hann frá í allt að 30 mínútur í senn á meðan þú kemur þér að bílnum.
Hægt er að leigja rafskútu á meðan bíll er tekinn frá til að komast að bílnum.