Get ég leigt margar rafskútur?
Já, þú getur smellt á "Annað hopp" takkann eftir að hafa byrjað eina ferð og þá er hægt að skanna næstu skútu.
Hversu hratt kemst ég?
Hámarkshraðinn samkvæmt lögum er 25 km/klst og komast skúturnar upp í þann hraða.
Gulu reitirnir inn á þjónustusvæðinu eru hæg svæði og þeir lækka hámarkshraðan niður í 15km/klst.
Má ég fara út af svæðinu?
Nei, rafskútan mun stoppa ef farið er út af þjónustusvæðinu.